Ráðgjöf
Fagleg ráðgjöf og aðstoð við sölu og kaup eigna sem byggir á áratuga reynslu.
Yfir 25 ára reynsla af sölumennsku — þar af áratugur sem fasteignasali. Persónuleg þjónusta sem skilar árangri.
Heildstæð þjónusta frá fyrstu ráðgjöf til afsals — alltaf með þínar þarfir í forgangi.
Fagleg ráðgjöf og aðstoð við sölu og kaup eigna sem byggir á áratuga reynslu.
Verðmat eignar með tilliti til markaðar og sambærilegra eigna í hverfinu, ásamt söfnun gagna fyrir söluferlið.
Eignin er markaðssett á skilvirkan hátt með faglegum ljósmyndum og upplýsingum sem draga að kaupendur.
Eignin er sýnd í einkasýningu eða á opnu húsi með eftirfylgni til að ná bestu niðurstöðum.
Haft er samband við alla sem sýna eigninni áhuga og öllum fyrirspurnum svarað persónulega.
Útbúin tilboð og komið á framfæri eins fljótt og unnt er, ásamt ráðgjöf í öllu ferlinu.
Samningur unninn af aðila með yfir 30 ára reynslu. Fasteignasali fylgir ferlinu fram að afsali — og lengur ef þarf.
Er faglegur og með góða þekkingu á fasteignamálum. Með áratuga reynslu sem sölustjóri og viðskiptastjóri er hann tilbúinn að veita þér þjónustu sem uppfyllir þínar þarfir á sem bestan hátt.
Halldór hefur ríflega 25 ára starfsreynslu sem sölumaður, þar af yfir 10 ár sem fasteignasali. Hann lauk námi í löggildingu árið 2018 og hefur síðan þá verið sjálfstætt starfandi fasteignasali. Halldór er ábyrgur, fylginn sér og kemur til móts við þarfir viðskiptavina hverju sinni.
Halldór Kristján Sigurðsson er virkilega frábær fasteignasali. Ég þekkti hann ekki neitt þegar ég sendi honum tölvupóst og bar upp það sem var að brjótast um í mér. Hann hringdi strax í mig og við ræddum málið — og mér þótti svo vænt um hvað hann var tilbúinn að gera til að allt gengi upp, sem það svo auðvitað gerði.
Allt hefur verið 100% í okkar samskiptum og ég myndi ekki hika við að mæla með Halldóri við mína bestu vini. Ljúfur, áreiðanlegur, röskur, heiðarlegur — þú skiptir máli og hann „nennir“ þér. Takk Halldór fyrir frábæra þjónustu.
Hringdu, sendu póst eða skilaboð á samfélagsmiðlum. Ég svara öllum fyrirspurnum persónulega.